Höfundur: Diljá
Það er alltaf að verða algengara að fólk fari sjálft eða með börnin sín í eyrnagötun til gatara, í stað þess að fara á staði þar sem notast er við götunarbyssur. Við tökum þessu mjög fagnandi enda höfum við sjálfar frætt ótal manns um skaðsemi götunarbyssa. Við dæmum engan fyrir að hafa farið í góðri trú og fengið sér gat með byssu - ég gerði það sjálf þónokkrum sinnum sem unglingur! En við lifum og lærum, og ég ætla að tala aðeins um af hverju við gatarar eru svona mikið á móti götunarbyssum.
ATH.: Það er ekki samasem merki að nota ekki götunarbyssu og að vera góður gatari eða með velferð viðskiptavinar að leiðarljósi. Ég hvet fólk til að vanda valið á sínum gatara.
ATH. 2: Greinin er skrifuð með fræðsluefni APP til hliðsjónar (linkur neðst), allar fullyrðingar eru þaðan en ekki bara mín persónulega skoðun.
1. Götunarbyssur eru ekki dauðhreinsanlegar
Það er ekki hægt að setja götunarbyssur í dauðhreinsiofn (autoclava). Krafturinn í götunarbyssum veldur því að blóð getur orðið að ótal örsmáum ögnum sem húðar byssuna innan frá. Eyra og eyrnalokkur getur því komist í beina snertingu við blóð og líkamsvessa annarra. Þannig geta götunarbyssur dreift smitsjúkdómum, og í því samhengi má nefna að lifrarbólguveiran getur lifað á yfirborðum í nokkrar vikur.
2. Götunarbyssur valda óþarflega miklu hnjaski á húðinni
Oddurinn á byssulokkum virðist beittur, en hann er það ekki. Þegar skotið er í gegnum eyra er í rauninni verið að þrýsta óbeittum hlut í gegnum húðina. Þetta getur valdið óþarflega miklum sársauka, bólgumyndun og öramyndun. Ef skotið er í gegnum brjósk geta afleiðingarnar verið brotið brjósk, mikil (e. excessive) öramyndun og auricular chondritis (sorrí, ég veit ekki íslenska heitið!).
3. Lokkarnir sem notaðir eru í götunarbyssur eru illa hannaðir fyrir húðgöt
Eyrnalokkar fyrir götunarbyssur eru of stuttir fyrir suma eyrnasnepla og fyrir flest allt brjósk. Krafturinn í götunarbyssum er nógu mikill til að klemma lokknum upp við eyrað, og getur það heft loft- og blóðflæði, aukið bólgumyndun, öramyndun og valdið því að lokkurinn eða festingin grafi sig inn í húðina og festist. Flestir, ef ekki allir, byssulokkar eru ekki í ASTM (implant grade) gæðaflokki, og eiga því ekki heima í nýjum og gróandi götum.
4. Eru til götunarbyssur sem eru öruggar?
Þessi punktur er nýr, þar sem við höfum fengið fyrirspurnir hvort við myndum nota ákveðnar gerðir af götunarbyssum. Til er framleiðandi sem auglýsir “sterílan og blíðan (e.gentle) götunarbúnað” þar sem hægt sé að velja eyrnalokka úr 18kt, 14kt og 10kt gulli, 24kt gullhúðun, læknastáli og “medical grade títaníum”. Sami framleiðandi hvetur til götunar í “friðhelgi eigin heimilis”, sem sagt heimagötunar, segir notendum að snúa lokkunum sínum meðan á gróanda stendur og að gróandi á götum í brjóski sé 12 vikur. Eftir 12 vikur geturðu farið að leika þér með nýja stíla!
Ég ætla að útskýra í nokkrum punktum hvað er athugavert við þetta allt saman svo þetta verði ekki algjör langloka.
Gull er viðeigandi í ný göt ef það er 14kt - 18kt, og nikkel- og kadmíumfrítt. Gull sem er lægra en 14kt er of blandað með ýmsum málmum, og gull sem er hærra en 18kt er of mjúkur málmur fyrir ný göt því hann getur auðveldlega rispast. Gullhúðaður lokkur er ekki viðeigandi heldur þar sem húðunin gæti rispast og flagnað inni í gatinu sem við viljum alls ekki.
“Læknastál” og “læknatítaníum” segir ekkert til um yfirborð lokksins, og það að málmurinn sé innan staðla Evrópusambandsins segir okkur ekkert heldur. Vandað yfirborð skiptir miklu máli, því örsmáar rispur á yfirborði lokka geta ýft gatið upp að innan og safnað bakteríum.
Það er mjög óábyrgt að hvetja til heimagötunar vegna sýkingarhættu og einnig vegna þess að jafnvel þó hreinlæti væri tipp topp, að þá er götun meira en bara það - Ábyrg götun er samspil hreinlætis, vandaðra lokka, vandaðra vinnubragða og réttra umhirðuleiðbeininga - sem þetta tiltekna fyrirtæki er ekki með.
Það er mjög óábyrgt að hvetja til þess að stinga í brjósk með götunarbyssu. Þó svo að lokkarnir séu með “beittum odd” þá er hann það í raun og veru alls ekki. Það að stinga óbeittum hlut í gegnum húð og hvað þá brjósk, veldur mun meira álagi á húðina og getur valdið mun meiri sársauka, bólgumyndun og öramyndun.
Það á alls ekki að snúa lokkum með á gróanda stendur. Það eykur líkur á ertingu og sýkingum.
Göt í brjóski geta gróið á 12 vikum, en það er mjög óalgengt og hjá flestum tekur gróandi 6-9+ mánuði. Það að fullyrða að brjósk sé gróið á 12 vikum (sérstaklega gat gert með byssu) og hvetja til þess að prufa nýja lokka að þeim tíma liðnum er ávísun á sýkingar.
Að lokum: Jafnvel þó að götunarbyssa sé útbúin einhverjum þar til gerðum hylkjum utan um lokkinn sem gæti þess að lokkurinn komist aldrei í snertingu við byssuna og líkamsvessa annara, þá er samt ennþá “blunt force trauma” því lokknum er þvingað í gegnum húð, lokkarnir eru ekki úr viðeigandi málmum eða gæðum, og manneskja sem notar götunarbyssu er ekki lærður gatari og er meira umhugað um peninga heldur en þína velferð.
Aukapunktur
Ég hef heyrt ótal slæmar sögur af byssugötun. Á þeim stöðum þar sem boðið er upp á byssugötun eru umhirðuleiðbeiningar að auki oft mjög úreltar, og ýtir það enn frekar undir sýkingarhættu og erfiðan gróanda.